Samband ungra sjálfstæðismanna stendur fyrir ræðunámskeiði fyrir framhaldsskólanema. Fyrri hluti fer fram klukkan 17 fimmtudaginn 28. janúar og síðari hluti klukkan 17 laugardaginn 30. janúar. Boðið verður upp á veitingar. Námskeiðið verður haldið í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Farið verður yfir grunnatriði í ræðumennsku og einnig verður sérstaklega gerð grein fyrir keppnisræðumennsku. Námskeiðið mun enda með ræðukeppni á milli þáttakenda og hlýtur sigurverarinn titilinn Ræðumaður SUS 2010.
Leiðbeinendur eru Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og Ari Guðjónsson, laganemi, sem báðir eru reyndir ræðuþjálfarar,
Skráning fer fram í gegnum netfangið: sus@xd.is. Allar nánari upplýsingar veitir Hödd Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri SUS í síma 515-1700 og 696-6999.