Samband ungra sjálfstæðismanna leggur fram tillögur um niðurskurð á fjárlögum
Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) hefur sent frá sér ítarlega skýrslu, sem send verður þingmönnum allra flokka sem sæti eiga á Alþingi, um það hvernig ná megi fram raunhæfum fjárlögum án skattahækkana.
Ólafur Örn Nielsen, formaður SUS, afhenti af þessu tilefni Guðbjarti Hannessyni, formanni fjárlaganefndar Alþingis, fyrsta eintak skýrslunnar í Alþingishúsinu í dag.
Fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra gerir ráð fyrir 87,4 milljarða króna halla þrátt fyrir 63,1 milljarða króna skattahækkanir. Aðeins er gert ráð fyrir að útgjöld ríkisins lækki um 7,3% að raunvirði á næsta ári. Það er miður í ljósi þess að ríkisútgjöld hafi stóraukist síðustu árin. Sú staðreynd ætti að sýna fram á að verulegt svigrúm er til enn meiri sparnað.
Stjórn SUS telur að vel sé hægt að spara í rekstri ríkisins þannig að hægt verði að ná fram raunhæfum fjárlögum án skattahækkana og án þess að það komi verulega niður á velferðar-, heilbrigðis- eða menntakerfinu. Ríkissjóður er nú á heljarþröm og brýnt er að allir landsmenn, sem og ráðherrar ríkisstjórnarinnar, horfist í augu við þá staðreynd að skera verður niður í ríkisrekstri eftir gríðarlega útþenslu hins opinbera á undanförnum árum. Niðurskurður er eina færa leiðin fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu sem hafa ekki svigrúm til aukinna skattgreiðslna.
SUS leggur til að útgjöld ríkisins verði lækkuð um 72,7 milljarða, eins og nánar er útlistað í þessari skýrslu. Auk þess má varlega áætla að breyting á skattlagningu lífeyrisgreiðslna muni bæta afkomu ríkissjóðs um allt að 40 milljarða króna og að bætt umhverfi viðskiptalífsins myndi skapa um 5.000 störf og 15 milljarða í auknum skatttekjum. Samanlagt er því um að ræða 127,7 milljarða króna sem myndu minnka fjárlagahallan um 64,6 milljarða án skattahækkana
Meginþættir:
· Hægt er að ná fram raunhæfum fjárlögum og minnka hallan um 64,8 milljarða með auknum tekjum og sparnaði, án skattahækkana.
· Útgjöld ríkisins verði lækkuð um 72,7 milljarða, án þess að skerða framlög til velferðar-, heilbrigðis- eða menntakerfisins verulega.
· Tekjur ríkisins verði auknar um allt að 55 milljarða, án skatthækkana, með breytingu á skattlagningu lífeyrisgreiðslna og eflingu atvinnulífsins.
· Herða þarf eftirfylgni með fjárlögum, m.a. með því að veita Ríkisendurskoðun valdheimildir til að beita forstöðumenn ríkisstofnana, sem fara fram úr fjárheimildum án eðlilegra útskýringa, viðurlögum.
Þessu til viðbótar fagnar SUS efnahagstillögum þingflokks Sjálfstæðisflokksins en telur jafnframt að þar sé gengið alltof skammt í átt til lækkunar ríkisútgjalda. Þó telur SUS að Sjálfstæðisflokkurinn verði að biðjast afsökunar á sínum þætti í því að hafa stóraukið ríkisútgjöld á síðustu árum.
Frekari upplýsingar veitir:
Ólafur Örn Nielsen, formaður SUS
669-1168; oli@xd.is