Sambandsþing SUS, hið fertugasta í röðinni, mun fara fram á Ísafirði helgina 25.-27. september 2009. Hér mun vera hægt að vinna upplýsingar um dagskrá þingsins, ferðamáta og gistingu á Ísafirði.
__________________________________________________
Framtíðin er í okkar höndum á Ísafirði
Ungir sjálfstæðismenn eru langstærsta og öflugasta stjórnmálahreyfing ungs fólks á Íslandi. Í gegnum árin hafa ótrúlega margar góðar hugmyndir kviknað í SUS sem svo hafa orðið að veruleika. Styrkur SUS felst í því að hjá okkur ræður hugsjónin um frelsi einstaklinganna ríkjum og út frá þeim upphafspunkti getum við myndað afstöðu til málanna.
Í haust stefnum við SUS-urum til Ísafjarðar á sambandsþing sem ber yfirskriftina: Framtíðin er í okkar höndum. Þar ætlum við að kynna hugmyndir um þau mál sem við viljum að sett séu á oddinn hjá sjálfstæðismönnum í uppbyggingarstarfinu sem allir landsmenn eiga fyrir höndum. Með því að setja fram hugmyndir okkar á skýran hátt getum við haft talsverð áhrif.
En sambandsþingið á Ísafirði snýst auðvitað ekki síður um að hitta skemmtilegt fólk og styrkja vinaböndin. Auk hefðbundsins og fjörlegs málefnastarfs verður boðið upp á mikla skemmtun, námskeið af ýmsum toga auk annarra eftirminnilegra viðburða. Enginn verður svikinn af því að mæta vestur á firði á ógleymanlegt sambandsþing.